Jafntefli í seinni leiknum

Byrjunarlið Íslands gegn Lettlandi í gær.
Byrjunarlið Íslands gegn Lettlandi í gær. Ljósmynd/KSÍ

Íslenska landsliðið í knattspyrnu, skipað piltum 18 ára og yngri, gerði jafntefli gegn Lettum í seinni vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Lettlandi í gær.

Karl Friðleifur Gunnarsson kom Íslandi yfir á 25. mínútu og allt stefndi í að það yrði sigurmark, þar til Lettar fengu vítaspyrnu á lokamínútunum og jöfnuðu metin, 1:1.

Ísland vann fyrri leikinn 2:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert