Ólafsvíkingar upp í annað sæti

ÍR-ingar sækja að Ólafsvíkingnum Kwame Quee í leiknum í dag.
ÍR-ingar sækja að Ólafsvíkingnum Kwame Quee í leiknum í dag. Ljósmynd/Alfons

Víkingur Ólafsvík skaut sér í annað sæti 1. deildarinnar í knattspyrnu, Inkasso-deildarinnar, í dag með því að leggja ÍR að velli, 2:1.

Alexander Helgi Sigurðarson kom Víkingum yfir á Ólafsvíkurvelli á 72. mínútu en Andri Jónasson jafnaði fyrir gestina sex mínútum síðar.

Það stefndi allt í jafntefli þangað til að heimamenn fengu vítaspyrnu í uppbótartíma venjulegs leiktíma og úr henni skoraði Emmanuel Eli Keke til að tryggja Víkingum stigin þrjú. Víkingur Ó. er því með 26 stig í öðru sætinu eftir 12 umferðir en HK er á toppnum með 28 stig. ÍR-ingar eru áfram í 11. og næstneðsta sæti með tíu stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert