Selfoss sendi Hauka í fallsæti

Hvorje Tokic skoraði þrennu.
Hvorje Tokic skoraði þrennu. Ljósmynd/Selfoss

Selfoss vann afar sannfærandi 5:0-sigur á Haukum í Inkasso-deild karla í fótbolta í dag. Hrvoje Tokic skoraði þrennu fyrir Selfoss, sem fór upp fyrir Hauka með sigrinum og eru Haukar því í næstneðsta sæti sem er fallsæti. Guðmundur Axel Hilmarsson skoraði einnig fyrir Selfoss og eitt markanna var sjálfsmark. 

ÍA styrkti svo stöðu sína á toppi deildarinnar með 2:0-sigri á ÍR á útivelli. Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrsta markið á 25. mínútu og Jeppe Hansen bætti við öðru á 73. mínútu og þar við sat. ÍA er nú með fjögurra stiga forskot á HK á toppi deildarinnar, en HK á leik til góða. ÍR er í áttunda sæti með sextán stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert