Caitlyn Clem framlengir við Selfoss

Einar Karl Þórhallsson stjórnarmaður og Caitlyn Clem handsala nýja samninginn.
Einar Karl Þórhallsson stjórnarmaður og Caitlyn Clem handsala nýja samninginn. Ljósmynd/Selfoss

Bandaríski markvörðurinn Caitlyn Clem skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. Clem gekk til liðs við Selfoss í vor og átti hún stóran þátt í að nýliðarnir héldu sæti sínu í deild þeirra bestu.

Hún hefur spilað sextán af sautján leikjum Selfoss í deildinni og varið að meðaltali 4,1 skot í leik en andstæðingar Selfoss hafa átt 5 skot á rammann að meðaltali í sumar.

„Við erum mjög ánægð með að Clem hafi framlengt samning sinn. Hún hefur staðið sig vel bæði innan vallar og utan og unnið sín störf af fagmennsku. Það er mikilvægt fyrir okkur að halda henni, til þess að byggja ofan á þann góða grunn sem við lögðum í sumar. Hún hefur einnig aðstoðað við þjálfun í yngri flokkum og gefið mikið af sér þar enda er hún góð fyrirmynd og mikill íþróttamaður,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, í fréttatilkynningu frá félaginu.

Hún er spennt fyrir komandi tímum hjá Selfossi.  

„Ég hef öðlast góða reynslu hér á Íslandi í sumar og mér líður eins og heima hér á Selfossi. Að vera hér hefur ekki aðeins hjálpað mér að vaxa sem leikmaður heldur líka sem einstaklingur. Ég hlakka mikið til næsta tímabils. Það hefur verið stígandi í leik okkar í sumar og það verður spennandi að halda því áfram á næsta ári,“ sagði Clem. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert