Helena áfram með ÍA

Helena Ólafsdóttir hefur stýrt ÍA frá árinu 2017.
Helena Ólafsdóttir hefur stýrt ÍA frá árinu 2017. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir

Helena Ólafsdóttir verður áfram þjálfari ÍA í 1. deild kvenna í knattspyrnu en það er heimasíða félagsins sem greinir frá þessu í kvöld. Þá mun Aníta Lísa Svansdóttir áfram aðstoða Helenu, en Aníta hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins, undanfarin tvö ár.

ÍA endaði í þriðja sæti Inkasso-deildar kvenna á dögunum með 40 stig. Í fyrra endaði liðið í fimmta sæti deildarinnar með 27 stig. ÍA ætlar sér upp um deild á næsta ári og því var ákveðið að endurnýja samninga við þær Helenu og Anítu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert