Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu hófst núna klukkan 14 en úrslitin á toppnum og botninum eru þegar ráðin. Breiðablik fékk Íslandsmeistarabikarinn afhentan eftir sigur á Selfossi í síðustu umferð.
Blikar eru nú í heimsókn hjá Val að Hlíðarenda og fyrir leik stóðu Valskonur heiðursvörð fyrir nýkrýnda Íslandsmeistara eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og í myndskeiði hér neðst í fréttinni.
Mbl.is er með beinar textalýsingar frá öllum leikjunum sem eru eftirfarandi:
Valur – Breiðablik
Stjarnan – Þór/KA
Selfoss – ÍBV
HK/Víkingur – KR
Grindavík – FH
Valur stóð heiðursvörð fyrir Íslands- og Bikarmeistara Breiðabliks!👏🏻👏🏻
— Blikar.is (@blikar_is) September 22, 2018
💚💚💚#blikarkoma #fotboltinet pic.twitter.com/wNl5NVWTYf