Gunnlaugur samdi við Þróttara

Gunnlaugur Jónsson.
Gunnlaugur Jónsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gunnlaugur Jónsson, þjálfari karlaliðs Þróttar Reykjavíkur í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning en þetta kemur fram á vef félagsins.

Gunnlaugur tók við þjálfun Þróttaraliðsins í apríl á þessu ári af Gregg Ryder, sem nýlega var ráðinn þjálfari Þórs á Akureyri.

Þróttur hafnaði í 5. sæti í Inkasso-deildinni í sumar undri stjórn Gunnlaugs sem hefur þjálfað Selfoss, Val, HK og ÍA.

Þá kemur fram á vef Þróttar að Rafn Andri Haraldsson hafi gert nýjan samning sem gildir út tímabilið 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert