Erna framlengir við Selfoss

Alfreð Elías Jóhannsson og Erna Guðjónsdóttir handsala samninginn.
Alfreð Elías Jóhannsson og Erna Guðjónsdóttir handsala samninginn. Ljósmynd/UMFS

Knattspyrnukonan Erna Guðjónsdóttir hefur gert nýjan tveggja ára samning við Selfoss og mun því leika með liðinu í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð. Erna, sem er 22 ára miðjumaður, hefur leikið 133 meistaraflokksleiki fyrir Selfoss. Þar af hefur hún leikið 73 leiki með liðinu í efstu deild og skorað í þeim 9 mörk.

„Erna er einn af hæfileikaríkustu leikmönnunum sem við eigum. Hún hefur átt erfitt vegna meiðsla undanfarin ár og vonandi er hennar tími loksins kominn núna. Hún er frábær liðsmaður og mikill Selfyssingur. Hún er keppnismanneskja fram í fingurgóma og gefur mikið af sér bæði innan sem utan vallar,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, í samtali við heimasíðu Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert