Belgía og Ísland sem eigast við í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu á King Baudouin-leikvanginum í Brussel annað kvöld mættust síðast á þessum velli fyrir fjórum árum.
Belgar höfðu þá betur í vináttuleik þjóðanna 3:1 þar sem Alfreð Finnbogason skoraði mark íslenska liðsins og jafnaði metin en á meðfylgjandi myndskeiði má sjá mörkin úr leiknum.