Karlalið Fylkis og KA búa sig nú undir komandi leiktíð í fótboltanum í æfingaferð í Belek, Tyrklandi. Þau nýttu tækifærið og mættust í æfingaleik og skoraði Davíð Þór Ásbjörnsson magnað mark fyrir Fylki í leiknum.
Davíð tók sig til og lét vaða af löngu færi með þeim afleiðingum að boltinn fór í boga og í þverslána og inn. Flugið á boltanum var magnað og markið hið fallegasta. Hér að neðan má sjá þetta ótrúlega mark.
Davíđ Ásbjörns skorađi sigurmarkiđ á móti KA í dag međ þrumufleyg af 30 metrum @fylkirmfl #fotboltinet pic.twitter.com/Kwv6sCZhOf
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) March 26, 2019