Við unnum fyrir þessum sigri

Frá fyrri leik Keflavíkur og Fylkis í sumar.
Frá fyrri leik Keflavíkur og Fylkis í sumar. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

„Við vorum mjög baráttuglaðar og það skilaði sér. Við unnum fyrir þessum sigri,“ sagði kát Kristrún Ýr Holm, leikmaður Keflavíkur, í samtali við mbl.is eftir 2:0-sigur á Fylki í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í kvöld. 

Eftir mjög erfiða byrjun á mótinu er Keflavík nú búin að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. „Við erum meira fókusaðar núna og sjálfstraustið er meira. Það er ástæðan fyrir því að þetta er allt koma hjá okkur.“

„Við erum búnar að ná að halda hreinu í þremur leikjum og við skoruðum fimm mörk í einum leik, fjögur í öðrum og svo núna tvö,“ sagði hún, áður en hún játti því að það væri gott fyrir sálarlífið að komast úr fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert