Kristinn og Ingólfur æfa með Víkingi

Kristinn Steindórsson í leik með FH.
Kristinn Steindórsson í leik með FH. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumennirnir Kristinn Steindórsson og Ingólfur Sigurðsson æfa með Víkingi Reykjavík um þessar mundir. Kristinn hefur síðustu tvö ár leikið með FH og Ingólfur var á mála hjá Leikni R. á síðustu leiktíð. Fótbolti.net greindi frá. 

Kristinn kom til FH fyrir sumarið 2018 eftir veru hjá Sundsvall í Svíþjóð. Spilaði Kristinn sautján deildarleiki í fyrra og tólf í sumar. Hann spilaði hins vegar lítið síðari hluta tímabils. Hjá FH spilaði Kristinn á miðjunni, en hann sló í gegn á kantinum hjá Breiðabliki áður en hann hélt út í atvinnumennsku. 

Ingólfur lék þrettán leiki með Leikni R. á síðustu leiktíð. Þar á undan raðaði hann inn mörkunum með KH í 3. deild. Samningur Ingólfs við Leikni rennur út um áramótin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert