Einn sá efnilegasti framlengir við HK

Valgeir Valgeirsson átti gott tímabil síðasta sumar.
Valgeir Valgeirsson átti gott tímabil síðasta sumar. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Knattspyrnumaðurinn Valgeir Valgeirsson skrifaði í dag undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við HK. Valgeir var einn besti ungi leikmaður úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. 

Valgeir, sem er 17 ára, skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum á síðustu leiktíð og var einn besti leikmaður HK-inga, þrátt fyrir ungan aldur.

Hann hefur vakið athygli félaga erlendis og æfði hann t.a.m. með AaB í Danmörku í byrjun árs. Valgeir hefur leikið 24 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim tvö mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert