Njarðvík er komin upp í fjórða sæti 2. deildar karla í fótbolta eftir 2:1-sigur á KF, Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar á heimavelli í dag.
Bergþór Ingi Smárason kom Njarðvík yfir með eina marki fyrri hálfleiks og Atli Freyr Ottesen Pálsson bætti við öðru markinu á 48. mínútu. Arnar Helgi Magnússon minnkaði muninn fyrir KF á 65. mínútu og þar við sat.
Njarðvík er með níu stig í fjórða sæti, fjórum stigum á eftir Kórdrengjum á toppnum. KF er í sjötta sæti með sex stig.