Selfoss fær efnilegan Húsvíking

Guðrún Þóra Geirsdóttir.
Guðrún Þóra Geirsdóttir.

Guðrún Þóra Geirsdóttir, sautján ára Húsvíkingur, kemur til liðs við úrvalsdeildarlið Selfyssinga í fótboltanum eftir þetta tímabil og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Guðrún hefur þegar leikið með meistaraflokki Völsungs undanfarin tvö keppnistímabil og hefur spilað 28 deildaleiki og skorað í þeim fimm mörk þrátt fyrir ungan aldur. Hún verður lánuð aftur til Völsungs og leikur því með Húsavíkurliðinu í 2. deildinni til haustsins en kemur þá til liðs við Selfyssinga og hefur nám í Knattspyrnuakademíu Íslands við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert