Víkingar streyma leik fyrir fimm evrur

Víkingur og Valur mætast á laugardaginn.
Víkingur og Valur mætast á laugardaginn. mbl.is/Árni Sæberg

Reykjavíkurfélögin Víkingur og Valur mætast í æfingaleik í meistaraflokki karla í fótbolta á laugardaginn og Víkingar ætla að bjóða fólki að sjá leikinn í streymi fyrir fimm evrur.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Víkingar settu á samfélagsmiðla fyrir stundu. Leikið verður án áhorfenda og flautað til leiks á Víkingsvellinum klukkan 12 á hádegi. Þetta verður fyrsti leikur liðanna eftir að öllu var lokað vegna sóttvarna fyrir þremur vikum.

Liðin búa sig undir Íslandsmótið sem átti að hefjast 22. apríl en seinkar væntanlega um eina viku eða svo. KSÍ hefur ekki tilkynnt endanlegar dagsetningar á keppni í Pepsi Max-deild karla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert