Ísak úr leik vegna tannpínu

Ísak Snær Þorvaldsson, fyrir miðju, á æfingu 21-árs landsliðsins fyrir …
Ísak Snær Þorvaldsson, fyrir miðju, á æfingu 21-árs landsliðsins fyrir fyrri leikinn við Tékka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísak Snær Þorvaldsson sóknarmaður úr Breiðabliki hefur dregið sig úr hópi 21-árs landsliðsins í fótbolta fyrir seinni umspilsleikinn gegn Tékkum sem fram fer á þriðjudaginn.

KSÍ tilkynnti þetta í kvöld og skýrði frá því að ástæðan væri sýking í tönn. Í hans stað kemur Hilmir Rafn Mikaelsson, leikmaður Venezia á Ítalíu en hann er 18 ára gamall og á að baki 11 leiki með U19 ára landsliðinu þar sem hann hefur skorað fjögur mörk.

Íslenska liðið tapaði fyrri leiknum, 1:2, á Víkingsvellinum í gær og þarf því sigur í þeim síðari í Cesko Budejovice á þriðjdaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert