Á förum frá Akranesi

Brynjar Snær Pálsson er á förum frá ÍA.
Brynjar Snær Pálsson er á förum frá ÍA. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumaðurinn Brynjar Snær Pálsson er á förum frá ÍA á Akranesi en hann gekk til liðs við félagið frá Skallagrími árið 2017.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en samningur leikmannsins rann út í október.

Brynjar, sem er 21 árs gamall, á að baki 50 leiki í efstu deild en hann kom við sögu í þrettán leikjum með Skagamönnum í Bestu deildinni í sumar.

Skagamenn féllu úr Bestu deildinni í haust og leika því í 1. deildinni á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert