Hal Robson-Kanu, landsliðsmaður Wales í knattspyrnu, kom liðinu yfir gegn Belgíu í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í kvöld en markið var afar snoturt.
Radja Nainggolan kom belgíska liðinu yfir snemma leiks með þrumufleyg fyrir utan teig áður en Ashley Williams jafnaði með skallamarki eftir hornspyrnu. Robson-Kanu kom svo Wales yfir í byrjun síðari hálfleiks með góðu marki.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en takið sérstaklega eftir snúningnum sem Robson-Kanu tekur.
Robson-Kanu kemur #WAL yfir gegn #BEL eftir ótrúlegan snúning inni í teig! 2-1 #EMÍsland https://t.co/NwybV3UkOq
— Síminn (@siminn) July 1, 2016