„Stálu“ íslenska víkingaklappinu

Leikmenn Wales fagna í kvöld.
Leikmenn Wales fagna í kvöld. AFP

Stuðningsmenn velska karlalandsliðsins í knattspyrnu fögnuðu sigri liðsins á Belgíu í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í kvöld á fremur kunnuglegan hátt en þeir notuðu víkingaklappið sem íslenska landsliðið hefur gert frægt á mótinu.

Víkingaklappið er heldur betur orðið þekkt á Evrópumótinu en stuðningsmenn ásamt leikmönnum hafa boðið upp á sýningu eftir leiki þar sem klappið er framkvæmt. Það var upphaflega tekið frá skoska liðinu Motherwell en fleiri eru farnir að nota klappið.

Stuðningsmenn velska landsliðsins notuðu klappið eftir sigur Wales á Belgíu í kvöld og virtust margir afar ósáttir með þennan gjörning þeirra. Hægt er að sjá twitterfærslur hér fyrir neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin