[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 21.3.2010
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram í dag í Smáralindinni 
Skák.is Íslandsmót barnaskólasveita 2010 fer fram í Vetrargarðinum, Smáralind , sunnudaginn 21.mars. Mótshaldið er í höndum Skákakakademíu Reykjavíkur í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Tefldar verða 8 umferðir eftir Monrad-kerfi - umhugsunartími 10 mín.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Hafnfirðingarnir Aron Pálmarsson og Logi Geirsson eru í íslenska landsliðinu sem fer á EM í Austurríki.

Hafnfirðingarnir Aron Pálmarsson og Logi Geirsson eru í íslenska landsliðinu sem fer á EM í Austurríki. Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Íþróttir | mbl.is | 14.1.2010 | 11:48

Ólafur og Logi fara á EM en Ragnar og Rúnar sitja eftir

Ólafur Guðmundsson og Logi Geirsson eru á meðal þeirra 16 leikmanna sem Guðmundur Þórður Guðmundsson valdi í 16 manna landsliðshóp sinn sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu í handknattleik sem hefst í Austurríki á þriðjudaginn. Ragnar Óskarsson og Rúnar Kárason hluti ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans af þeim 19 leikmönnum sem hafa æft saman fyrir mótið frá í ársbyrjun. Þórir Ólafsson hafði áður helst úr lestinni vegna meiðsla.

EM-hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten
Hreiðar Levy Guðmundsson, TV Emsdetten
Aðrir leikmenn:
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löwen
Sturla Ásgeirsson, HSG Düsseldorf
Róbert Gunnarsson, Gummersbach
Vignir Svavarsson, Lemgo
Sverre Jakobsson, Grosswallstadt
Ingimundur Ingimundarson, GWD Minden
Arnór Atlason, FCK Köbenhavn
Aron Pálmarsson, Kiel
Snorri Steinn Guðjónsson, Rhein-Neckar Löwen
Logi Geirsson, Lemgo
Ólafur Guðmundsson, FH
Alexander Petersson, Flensburg
Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen
Ásgeir Örn Hallgrímsson, GOG Svendborg

Íslenska liðið fer til Frakklands í fyrramálið og leikur þar tvo vináttulandsleiki. Fyrri leikurinn verður við Spánverja á laugardaginn kl.13. Sigurvegari leiksins leikur úrslitaleik á sunnudeginum kl.15.15 en liðið sem tapar leikur kl.13.00 um 3. sætið. Hin tvö liðin í mótinu eru heims- og ólympíumeistarar Frakka og Brasilíumenn sem í gærkvöldi töpuðu fyrir Þjóðverjum í Mannheim, 34:22.

Fyrsti leikur Íslands á EM verður gegn Serbíu á þriðjudaginn kl.19.15.
 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / EM handbolta — Fleiri fréttir