Stórsigur Spánverja á Makedóníumönnum

Það var hart tekist á í kvöld.
Það var hart tekist á í kvöld. AFP

Spánverjar áttu ekki í miklum vandræðum með að sigra Makedóníumenn í milliriðli Evrópumóts karla í handbolta í Króatíu í kvöld, 31:20. Spánverjar skoruðu sex af fyrstu sjö mörkum leiksins og var seinni hálfleikurinn formsatriði enda staðan 15:6 í hálfleik.

Eduardo Gurbindo skoraði sex mörk í jöfnu liði Spánverja og þeir Stojanche Stoilov og Dejan Manaskov gerðu fjögur mörk fyrir Makedóníu. 

Spánverjar eru nú með fjögur stig í 2. sæti milliriðils 2 og Makedóníumenn í 4. sæti með þrjú stig. Spánverjar eiga leik til góða á Dani sem eru í toppsæti riðilsins með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert