Ljóst hverjir yrðu andstæðingar Íslands

Ísland mætir Danmörku og Frakklandi í milliriðli, fari svo að …
Ísland mætir Danmörku og Frakklandi í milliriðli, fari svo að liðið komist áfram gegn Ungverjalandi á morgun. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Það bíður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik verðugt verkefni í milliriðli á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu, fari svo að Ísland tryggi sér sæti í milliriðlakeppninni á morgun.

Ísland er í efsta sæti B-riðils keppninnar með 4 stig eða fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína á mótinu.

Íslenska liðið mætir Ungverjalandi í úrslitaleik um sæti í milliriðli á morgun í Búdapest en Íslandi dugar jafntefli til þess að tryggja sig áfram og má líka tapa með einu marki.

Fari svo að Ísland komist áfram mætir liðið Danmörku og Svartfjallalandi úr A-riðli keppninnar og loks Frakklandi og Króatíu úr C-riðlinum.

Keppni í milliriðlum hefst 20. janúar en fyrsti mótherji Íslands í milliriðli yrði annaðhvort Danmörk eða Frakkland en sá milliriðill verður leikinn í Búdapest þannig að íslenska liðið yrði kyrrt í ungversku höfuðborginni ef það kæmist áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert