Sturridge líklega með

Luis Suárez og Daniel Sturridge fagna marki.
Luis Suárez og Daniel Sturridge fagna marki. EPA

Liverpool gerir sér góðar vonir um að geta teflt framherjanum Daniel Sturridge fram í leiknum gegn Norwich um helgina.

Sturridge, sem er annar markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 20 mörk, fór af velli um miðjan seinni hálfleik í sigri Liverpool á móti Manchester City um síðustu helgi. Sturridge fann fyrir meiðslum og var talið að hann hefði tognað í læri en komið hefur í ljós að meiðslin eru minniháttar og líkur eru á að hann verði með gegn Norwich.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert