Liverpool hóf titilvörnina með sigri gegn City

Katrín Ómarsdóttir bregður á leik og hellir kampavíni yfir þjálfara …
Katrín Ómarsdóttir bregður á leik og hellir kampavíni yfir þjálfara sinn, Matt Beard, eftir að Englandsmeistaratitillinn var í höfn á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Liverpoolfc.com

Liverpool hóf titilvörnina í ensku úrvalsdeildinni í kvennaflokki í knattspyrnu með 1:0 sigri gegn Manchester City í kvöld.

Landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir lék allan tímann fyrir Liverpool en það var hin marksækna Natasha Dowie sem skoraði sigurmark leiksins á 70. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert