Moses segist fara aftur til Chelsea

Victor Moses.
Victor Moses. AFP

Victor Moses, kantmaður í liði Liverpool, reiknar ekki með að vera áfram í herbúðum liðsins eftir þetta tímabil en hann er lánsmaður frá Chelsea.

„Ég er leikmaður Chelsea. Ég kom til Liverpool til sinna faglegu starfi en eftir tímabilið mun ég fara aftur til Chelsea og mun þar berjast fyrir sæti í liðinu,“ sagði Moses við Sky Sports í dag.

Moses, sem er 23 ára gamall, hefur komið við sögu í 21 leik með Liverpool á tímabilinu en hann Chelsea lánaði hann út tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert