Lukaku sagður semja við Everton til fimm ára

Romelu Lukaku fagnar marki fyrir Everton.
Romelu Lukaku fagnar marki fyrir Everton. AFP

Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku mun leika áfram með Everton á komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Chelsea síðasta vetur. Þetta er fullyrt á vef belgíska blaðsins Het Laatste Nieuws.

Lukaku birti sjálfur mynd af sér á Twitter í flugvél í morgun þar sem hann sagði tíma til kominn að skrifa nýjan kafla á ferli sínum. Everton er sagt þurfa að punga út um 30 milljónum punda fyrir Lukaku sem skoraði 15 mörk fyrir liðið á síðustu leiktíð. Hann mun semja við Everton til fimm ára.

Chelsea er ekki á flæðiskeri statt hvað framherja varðar en félagið fékk nýverið Didier Drogba til sín á nýjan leik og keypti Diego Costa frá Atlético Madrid fyrr í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert