Palace krækti í Hangeland

Brede Hangeland með treyju Palace.
Brede Hangeland með treyju Palace. Ljósmynd/Crystal Palace

Tony Pulis knattspyrnustjóri Crystal Palace hefur fengið til sín miðvörðinn hávaxna Brede Hangeland en hann kemur frítt til félagsins.

Hangeland, sem er 33 ára gamall Norðmaður, var áður leikmaður Fulham og lék 214 leiki í úrvalsdeildinni á sex árum. Hann var áður leikmaður FC Köbenhavn og Viking í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert