Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekkert sérstaklega sáttur eftir markaveislu dagsins þar sem Chelsea lagði Everton í níu marka leik, 6:3.
„Þetta var frábært fyrir alla sem horfðu á hvort sem var á vellinum eða í sjónvarpinu um allan heim, en ekki fyrir mig. Við getum ekki gert svona mörg mistök varnarlega. Við viljum bæta okkur sem lið og þá þarf að hafa styrk í vörninni. Við sýndum í dag að við erum að bæta okkur á ýmsum stöðum en ekki í vörninni,“ sagði Mourinho.
„Liðið nýtur þess að spila boltanum sín á milli og það er mjög mikilvægt, en við megum ekki gera svona mörg mistök. Við fengum mark á okkur eftir aukaspyrnu í dag og ég get ekki verið ánægður að fá svo fáránlegt mark á sig,“ sagði Mourinho.
Chelsea hefur byrjað tímabilið frábærlega að Mourinho vildi nú ekki gera mikið úr því. „Það eru enn 35 leikir eftir, þrír segja ekkert.“