Harry Redknapp knattspyrnustjóri QPR hefur staðfest að framherjinn Loic Remy sé á leið frá félaginu til Chelsea.
Remy var í láni hjá Newcastle á síðustu leiktíð og skoraði 14 mörk en honum er ætlað að fylla skarð Spánverjans Fernando Torres sem er kominn til AC Milan.