Stutt gaman hjá Southampton

Saphir Taider í baráttunni við Mesut Özil í landsleik Alsír …
Saphir Taider í baráttunni við Mesut Özil í landsleik Alsír og Þýskalands á HM í Brasilíu í sumar. AFP

Alsírski landsliðsmaðurinn Saphir Taïder er kominn aftur til Inter Mílanó eftir aðeins 25 daga hjá enska úrvalsdeildarliðinu Southampton. Taïder gerði eins árs lánssamning við Southampton við sama tilefni og Southampton seldi ítalska framherjann Dani Osvaldo til Inter í sumar.

Í dag sendi Southmapton hins vegar frá sér yfirlýsingu þar sem segir að félagið hafi ákveðið að samþykkja að rifta lánssamningi Saphir Taïder aðeins 25 dögum eftir að hann gekk í raðir félagsins.

Fylgist með félagaskiptaglugganum í beinni hér á mbl.is í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert