Walker fór í aðgerð

Kyle Walker.
Kyle Walker. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham greindi frá því í dag að bakvörðurinn Kyle Walker hafi þurft að gangast undir aðgerð.

Walker hefur glímt við meiðsli í kviði og hefur ekkert komið við sögu með Tottenham-liðinu frá því Mauricio Pochettino tók við liðinu.

Ekki liggur ljóst fyrir hvenær enski landsliðsmaðurinn snýr aftur inn á völlinn en hinn 24 ára gamli Eric Dier hefur fyllt skarð Walkers í fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu og hefur gert það nokkuð vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert