Gylfi og félagar í eldlínunni í kvöld

Gylfi Þór Sigurðsson í leik men Swansea gegn Manchester United.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik men Swansea gegn Manchester United. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Swansea verða í eldlínunni í kvöld en þá taka þeir á móti Everton í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu.

Liverpool og Arsenal verða einnig í eldlínunni í kvöld. Liverpool fær B-deildarlið Middlesbrough í heimsókn og Arsenal tekur á móti Southampton. Líklegt er að bæði Brendan Rodgers og Arsene Wenger gefi einhverjum af minni spámönnum sínum tækifæri.

Þá mæta Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Cardiff City liði Bournmouth í sömu keppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert