Costa útskrifaður af sjúkrahúsi

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Diego Costa framherji Chelsea hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi en Spánverjinn var lagður inn vegna veikinda.

Costa, sem er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Sergio Agüero, sneri veikur heim eftir leikina með spænska landsliðinu en hann er nú sagður vera að braggast. Þá hefur framherjinn öflugi glímt við nárameiðsli og hefur ekki spilað síðustu leiki Lundúnaliðsins.

Chelsea, sem trónir á toppi úrvalsdeildarinnar, sækir Manchester United heim á sunnudaginn og þykir frekar ólíklegt að Costa komi við sögu í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert