Van Gaal að fylgjast með Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson leikur á Stefan de Vrij
Gylfi Þór Sigurðsson leikur á Stefan de Vrij mbl.is/Golli

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, sendi mann á leik Stoke City og Swansea í ensku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag, gagngert til að fylgjast með Gylfa Þór Sigurðssyni. Þessu er haldið fram á enska netmiðlinum sportinastorm.com sem fjallar mikið um ensku liðin.

Sagt er að van Gaal hafi hrifist af Gylfa  þegar hann lék með Swansea og skoraði sigurmarkið gegn United í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í ágúst. Þá hafi Íslendingurinn leikið frábærlega í 2:0 sigri Íslands á Hollandi í síðustu viku og van Gaal hafi að sjálfsögðu fylgst grannt með þeim leik. Í kjölfarið hafi hann látið fylgjast enn betur með Gylfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert