Jóhann Berg orðinn leikfær

Jóhann Berg Guðmundsson
Jóhann Berg Guðmundsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er að ná sér á strik eftir meiðsli og lék síðasta hálftímann í ensku B-deildinni í kvöld. 

Jóhann kom inn á sem varamaður hjá Charlton þegar Lundúnaliðin Fulham og Charlton áttust við í vesturhluta borgarinnar. Fulham sigraði 3:0 með mörkum frá miðtengiliðnum leikreynda Scott Parker og tveimur frá Hugo Rodallega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert