Landsliðsfyrirliðinn fór meiddur af velli

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson mbl.is/Golli

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór meiddur af leikvelli eftir rúman hálftíma þegar Cardiff tapaði fyrir Milwall 1:0 á útivelli í næstefstu deild ensku knattspyrnunnar í dag. 

Aron lenti í samstuði og fór af leikvelli á 34. mínútu. Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg en íslenska landsliðið á afar mikilvægan leik í Tékklandi í næsta mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert