United hefur augastað á Vertonghen

Jan Vertonghen.
Jan Vertonghen. AFP

Manchester United hefur nú augastað á belgíska varnarmanninum Jan Vertonghen sem ku ekki sáttur við lífið hjá Tottenham undir stjórn Mauricios Pochettinos.

Vertonghen á þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum við Lundúnaliðið en að því er fram kemur í enska blaðinu Mirror í dag er hann ekki ánægður með stöðu sína hjá félaginu en hann var settur út úr liðinu í leiknum á móti Stoke fyrir landsleikjafríið.

United hefur verið í miklu basli með að stilla upp í varnarlínu sína en mikil meiðsli hafa herjað á United-liðið og Louis van Gaal hefur biðlað til eigenda liðsins um að fá fé til að kaupa leikmenn í janúarglugganum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert