Franski framherjinn Olivier Giroud, sem skoraði gegn Manchester United um helgina í sínum fyrsta leik eftir meiðsli, mun ekki leika með Arsenal gegn Dortmund í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöld.
Giroud er nýbúinn að jafna sig á ökklameiðslum en búist var við því að hann yrði frá keppni fram í janúar. Þess vegna var hann ekki skráður á lista Arsenal yfir leikmenn sem myndu taka þátt í Meistaradeildinni fyrir jól, og má því ekki spila gegn Dortmund.
Arsenal er einu stigi frá því að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum. Félagið má skrá þrjá leikmenn til viðbótar áður en 16-liða úrslitin hefjast.