Koscielny missir af Liverpool-leiknum

Koscielny í baráttu við Graziano Pelle.
Koscielny í baráttu við Graziano Pelle. AFP

Arsenal verður áfram án franska miðvarðarins Laurent Koscielny þegar liðið sækir Liverpool heim í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn.

Koscielny glímir við meiðsli og þá er óvíst um þátttöku þeirra Alex Oxlade-Chamberlain og Theo Walcott en þeir verða báðir prófaðir á leikdegi.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert