Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool var ánægður fyrir hönd Daniel Sturridge sem í dag skoraði síðara mark Liverpool í sigrinum gegn West Ham á Anfield.
Sturridge skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Liverpool síðan í ágúst en meiðsli hafa verið að plaga þennan frábæra framherja síðustu mánuðina.
„Þetta var gott fyrir hann og ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd. Þetta var frábær afgreiðsla hjá honum. Sturridge var afar spenntur að komast aftur inn á völlinn og það er frábært að hafa endurheimt þennan frábæra leikmanna. Með honum styrkist sóknarleikur okkar til mikilla muna,“ sagði Rodgers eftir leikinn.