„Góð úrslit fyrir okkur“

Matic í baráttu við David Silva.
Matic í baráttu við David Silva. AFP

Nemanja Matic miðjumaðurinn öflugi hjá Chelsea segir að úrslitin á móti Manchester City hafi verið góð fyrir liðið en 1:1 jafntefli varð niðurstaðan í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á Stamford Bridge í kvöld.

„Við skoruðum á 41. mínútu og það hefði verið gott fyrir okkur að ganga til hálfleiks með 1:0 stöðu en City sýndi að það er mjög gott lið, það gefst aldrei upp og því tókst að jafna metin á lokamínútu fyrri hálfleik.

„Ef þú gefur liði eins og Manchester City færi þá skorrr það en ég er ánægður með hvernig við spiluðum. Við áttum mjög erfiðan leik á móti Liverpool í miðri viku og ég tel að þessi úrslit séu góð fyrir okkur,“ sagði Matic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert