Mourinho veitti engin viðtöl

José Mourinho lætur dómarann Mark Clattenburg heyra það á Stamford …
José Mourinho lætur dómarann Mark Clattenburg heyra það á Stamford Bridge í kvöld. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea veitti engin viðtöl eftir leikinn gegn Englandsmeisturum Manchester City á Stamford Bridge í kvöld.

Mourinho aflýsti í gær vikulegum fréttamannafundi en hann vildi með því láta í ljós óánægju sína með ákvörðun aganefndar enska knattspyrnusambandsins að úrskurða framherjann Diego Costa í þriggja leikja bann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert