Tveir leikir í ensku úrvalsdeildinni í dag

Oliver Giroud og Santi Cazorla fagna marki með Arsenal.
Oliver Giroud og Santi Cazorla fagna marki með Arsenal. AFP

Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þar sem liðin í 4. og 6. sæti verða í eldlínunni.

Arsenal getur endurheimt fimmta sætið með sigri gegn Aston Villa á heimavelli og Southampton getur komist aftur upp í þriðja sæti takist liðinu að leggja Swansea að velli. Enginn Gylfi Þór Sigurðsson verður í liði Swansea en hann tekur út í dag fyrsta leikinn af þremur í leikbanni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert