Kannski besti leikur okkar á tímabilinu

Louis van Gaal var himinsæll eftir tæpan sigur.
Louis van Gaal var himinsæll eftir tæpan sigur. AFP

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, hrósaði sínum mönnum í hástert eftir tæpan útisigur á Newcastle, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

„Við vorum miklu sterkari aðilinn allar 90 mínúturnar. Þetta var kannski besti leikur okkar á tímabilinu, allavega á útivelli. Við áttum sigurinn fyllilega skilið," sagði van Gaal, en sigurmarkið sem Ashley Young skoraði kom eftir að hann hafi fengið boltann til sín á silfurfati þegar tvær mínútur voru eftir.

„Þetta var frábært hlaup hjá Rooney á eftir töpuðum bolta, þetta sýnir baráttuna í liðinu. Við höfðum skapað mörg færi og hefðum getað skorað miklu fyrr. Þeir fengu einnig tvö góð færi en David de Gea bjargaði okkur í markinu,“ sagði van Gaal.

„Við vildum virkilega vinna, allar mínar skiptingar voru til að sækja til sigurs en ekki halda jafnteflinu. Við sluppum fyrir horn í toppbaráttunni þar sem andstæðingar okkar unnu líka, en þetta er jafnt kapphlaup,“ sagði van Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert