Spiluðum af trú og innlifun

Arsene Wenger á vellinum í kvöld.
Arsene Wenger á vellinum í kvöld. AFP

Arsene Wenger var sáttur við sína menn eftir 2:1-sigur Arsenal á liði QPR í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Arsenal heldur þriðja sætinu eftir sigurinn.

„Við urðum að vera sterkir og spila boltanum vel á milli okkar. Við gerðum það betur í seinni hálfleik og þá fóru hlutirnir að gerast,“ sagði Wenger, en markalaust var í hálfleik áður en Oliver Giroud og Alexis Sánchez skoruðu mörk Arsenal. Charlie Austin minnkaði muninn fyrir QPR.

„Við skoruðum tvö en hefðum getað skorað fleiri, við spiluðum mjög vel í seinni hálfleik þar sem spilamennskan var góð. Við sköpuðum færi og spiluðum af trú og innlifun svo heilt yfir var þetta mjög jákvætt,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert