Argentínumaðurinn Sergio Agüero leikmaður Englandsmeistara Manchester City er orðinn einn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Agüero kom City á bragðið í 3:2 sigri gegn Aston Villa á Ethiad Stadium í kvöld og þar með komst á í toppsæti markalistans.
Þessir eru markahæstir:
21 - Sergio Agüero, Manchester City
20 - Harry Kane, Tottenham
19 - Diego Costa, Chelsea
17 - Charlie Austin, QPR
14 - Oliver Giroud, Arsenal
14 - Alexis Sanchez, Arsenal