Bayern sýnir Di Maria áhuga

Ángel Di Maria.
Ángel Di Maria. EPA

Þýsku meistararnir í Bayern München eru sagðir hafa áhuga að fá argentínska miðju- og sóknarmanninn Ángel Di Maria til liðs við sig.

Netútgáfa enska blaðsins Mirror greinir frá þessu í kvöld en Argentínumaðurinn náði sér engan veginn á strik á sínu fyrsta tímabili með Manchester United. Hann var varaskeifa stóran hluta tímabilsins en Di Maria kom við sögu í 27 leikjum og náði í þeim að skora 3 mörk.

Franska meistaraliðið Paris SG er einnig með Argentínumanninn í sigtinu en Manchester United keypti hann fyrir tímabilið frá Real Madrid fyrir fúlgu fjár en United greiddi tæplega 60 milljónir punda fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir 12,5 milljörðum íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert