Di María hæfileikaríkasti leikmaður United

Rojo og Di María í leik með argentíska landsliðinu.
Rojo og Di María í leik með argentíska landsliðinu. AFP

Marcos Rojo, samlandi og samherji Ángel Di María, segir að Di María muni spila vel á næsta tímabili og kallar hann hæfileikaríkasta leikmann Manchester United.

Di María kom til Manchester United í fyrrasumar á 59,7 milljónir punda sem er metfé. Þrátt fyrir góða byrjun átti Argentínumaðurinn erfitt með að festa sig í sessi í liðinu og missti byrjunarliðssætið að lokum. Marcos Rojo er þó viss um að Di María muni ná sér aftur á strik og endurheimta formið sem hann var í hjá Real Madrid.

„Að mínu mati er Ángel hæfileikaríkasti leikmaðurinn í liðinu. Klúbburinn býr yfir frábærum leikmönnum en Ángel er einn þeirra bestu í liðinu og í heiminum. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir hann en ég er viss um að hann muni standa sig mjög vel á næsta tímabili,“ sagði Rojo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert