Liðsfélagi Gylfa sektaður af Swansea

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Swansea
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Swansea AFP

James Demetriou, framherji Swansea og liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar, hefur verið sektaður um 700 pund fyrir ítrekuð brot á E8 reglu enska knattspyrnusambandsins sem varðar veðmál á knattspyrnuleiki.

Hinn 19 ára gamli Demetriou, sem leikur fyrir U21 árs landslið Kýpur, kom til Swansea frá Nottingham Forest fyrir 2 árum. Hann hefur ekki enn spilað leik fyrir aðallið Swansea. Teddy Bishop, leikmaður Leicester City, var einnig ásakaður um sama brot, þar er að segja að veðja á knattspyrnuleiki, fyrir skömmu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert